Elsku þú…. „Hvíldu í vitund þinni“ „Færðu athyglina milli augnabrúnanna og gefðu eftir inn í dýpsta stig slökunar… Hér er ekkert sem þarf að gera eða öðlast, þú hefur stigið inn í friðhelgi náðar og blessunar. Á þessu sviði sameiningar ert þú vitni alls sem er að gerast en aðhefst ekkert. …
Year: 2023
Hver værir þú ef þú værir eina manneskjan á jörðinni?
Elsku þú… Í tengslum þínum við sjálfa(n) þig og aðra verður lífið til. Þar leynist svæðið þar sem allt verður til og þróast. Svæðið inn á milli. Þessi vitneskja um lífð gerir okkur samábyrg fyrir því hvernig við komum fram hvort við annað og hvernig heim og samfélag við byggjum upp. Leyfðu þinni elskulegu sál…
Þitt innra tal!
Elsku þú …. Hefur þú tekið eftir því að innra með þér á sér stað stöðugt tal? Stundum er þetta skemmtilegt tal, stundum niðurrífandi og leiðinlegt. Þetta er vegna þess að þú ert flókin vera og það leynist mikil reynsla og margir „þættir“ innra með þér. Þú átt þér alvarlega „þætti“ og glaða og leikandi…
Þú átt skilið gott líf!
Ef til vill hefur þú upplifað að erfiðleika í lífi þínu hafa breytt þér. Hafa þeir gert þig að minni manneskju? Eða hafa þeir vakið þig til vitundar og aukið visku þína? Mikil þjáning felur í sér óendanlega möguleika til þroska. Í þjáningunni skiptir máli að muna að kraftar almættisins standa með þér. Þú ert…
Hversu margar stjörnur mundir þú gefa lífi þínu í dag?
Elsku þú…. Hvernig væri að breyta ytri erfiðleikum í innri styrk? Síðastliðin þrjú ár hafa svo sannarlega reynt á þolrifin. Heimurinn hefur snúist á hvolf og svo margt hefur gerst sem þú hefðir ekki getað ímyndað þér. Það er auðvelt að missa tökin þegar þú hefur enga stjórn á því sem er að gerast í…
Vilt þú æfa þig í að hrista áföll og erfiðleika úr líkama þínum?
Fallega sál…. Áföll og erfiðleikar setjast í líkama þinn vegna þess að flæði orkunnar innra með þér hefur stöðvast og myndað orkuhnút. Til þess að auðvelda flæðinu að streyma um líkama þinn getur verið gott að hrista hann. Þú getur séð fyrir þér að þú hristir erfiðleika og sársauka út úr líkama þínum þannig að…
Gleðilegt komandi ár!
Fallega sál…. Megir þú eiga góð áramót og dásamlega möguleika á nýju ári.
Það sem gefur ljós þarf að þola bruna
Elsku þú… Þegar erfiðleikar steðja að er gott að muna eftir eigin þrautseigju og seiglu. Þú ert sterkari en þú heldur. Þrautseigjan er þér í brjóst borin, annars hefðu ættmæður þínar og ættfeður ekki komist af í þessu landi á sínum tíma. Öll él birtir upp um síðir og þá mun ljós þitt og gleði…